Okkur var bent á þetta forrit, http://www.powtoon.com/ til að búa til stutt myndbönd. Ég prófaði það og sé að það hentar sérlega vel fyrir börn! En það er með þetta eins og svo margt í þessum bransa, þegar maður er kominn á bragðið er byrjað að rukka og þá er eins gott að halda aftur af sér ef maður á ekki að lenda í ógöngum með áskrift út um víðan völl. Prófaði að setja inn youtube-hlekk af páskapowtoon-inu mínu sem ég bjó til í fyrirframgefnu sniði en hver nýr fídus í viðbót kallaði á $$$... svo youtubið er bara takki...
Í morgun var menntaspjall um skólabókasöfn í Samspilinu meðan ég var vant viðlátin. Þar kom margt gagnlegt fram, sá ég, m.a. sú kenning að bókasafnið sé hjarta skólans. Það er nefnilega málið, það er vinnuaðstaða, fræðasetur, menntabúðir, griðastaður og samfélag nemenda, allt í senn. Þangað koma nemendur til að leita sér heimilda, leysa heimaverkefni eða þverfagleg verkefni, lesa sér til skemmtunar, hitta aðra nemendur, rekast á skemmtilega bók eða gagnleg fræði og vera innan um alls konar bækur. Það er orðið þannig að aðgangur nemenda heima að bókum er afskaplega misjafn og skólabókasöfn jafna þann aðstöðumun að miklu leyti. Enn er sáralítið af t.d. skáldsögum komið á rafrænt form svo bókin blífur í einhver ár enn.
Skólabókasafnið á vissulega líka að vera upplýsingatækniver með tækjum og tólum til að vinna að skólaverkefnum í margvíslegum forritum þar sem starfsfólk getur aðstoðað. Þar eru skipulagðar bókakynningar, forrits- og tæknikynningar, þemavikur, lestrarátak og skáldaheimsóknir. Kennarar ættu að vinna mikið með starfsmönnum bókasafnsins að margvíslegum þverfaglegum verkefnum og vera sjálfir sýnilegir á bóksafninu! Það er ennþá þörf fyrir bækur þótt upplýsingatæknin sé frábær. Hvorki bækur né net spanna allt sem hugsast getur en eru saman ótæmandi þekkingarbrunnur.
Þá er að koma sér úr viðjum PowerPoint. Ég hef látið nemendur nota Prezi með mjög góðum árangri, fyrirmælin eru að búa til glærusýningu um rómantísku stefnuna í bókmenntum. Það má bara nota Prezi, logga sig inn á facebookaðgangi og svo bara bjarga sér. Og mörg glæsileg show hafa komið út úr því. Nú prófaði ég Sway, það er doldið skemmtilegt og mjög smart en það bara virkar ekki hér! Fyrsta Sway-glærusýningin mín, um 20% verkefni í ÍSL403 Prófaði að búa til leik fyrir nemendur í ÍSL403, íslenskar bókmenntir frá 1550-1900, í litlu forriti í ClassTools.net sem var kynnt fyrir okkur í Samspilinu, ConnectFours, QuizTemplate. Þar eru 16 möguleikar sem á að para saman, smella á 4 reiti og hægt að fá aukastig ef maður er snöggur. Þessi þraut snýst um rómantísk skáld og verk. Prófaði hana svo á nemendum sem fannst hún doldið þung, þeir spreyttu sig svo á að búa til svona leik sjálfir.lærðu helling og skemmtu sér vel.
Para saman 4x4 Ég er spennt fyrir Samspilinu. Ég fylgist með því á facebook og það er frábært að hafa þar bakland og stuðning. Því miður komst ég ekki í tímann um daginn. Hef ekki áður notað weebly en hlakka til að fást við það. Það er gaman að prófa ný forrit en ég hef verið með wordpress-blogg í mörg ár (Steinunninga.wordpress.com) og sýnist í fljótu bragði að þetta sé ekki ósvipað. Skelli hér inn mynd til að prófa hvernig það virkar, hún var tekin á sólskinsdegi á Vestfjörðum 2011.
|
Fyrri færslur
July 2015
Flokkar |