Mikil og einhæf fjölmiðlaneysla og netnotkun ungs fólks geta leitt af sér brenglaða heimssýn, óstöðuga sjálfsmynd og misvísandi afstöðu til málefna, t.d. hlutverks kynjanna, sem geta haft alvarlegar afleiðingar. Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki í þessu samhengi, t.d. við að efla gagnrýna hugsun, hjálpa ungu fólki að sjá í gegnum dulinn boðskap auglýsinga og greina staðalmyndir. Það þarf að ræða opinskátt um jafnrétti kynjanna, m.a. vegna þess að í jarðvegi, þar sem birtingarmynd kynjanna í fjölmiðlum og netheimum er vægast sagt einlit og einkennist af hlutgervingu og staðalmyndum, spretta upp fyrirbæri eins og áreitni, einelti og svokallað hefndarklám.
Fyrst varð vart við hefndarklám hér á landi um 2008 og erfitt hefur reynst að ráða við útbreiðslu þess síðan þá. Umgt fólk eru viðkvæmar og stundum auðtrúa sálir og geta orðið fyrir því að myndum af þeim, sem eru teknar í skólanum, á böllum, í partýum eða á heimavelli, er dreift miskunnarlaust á netinu. Algengt er t.d. að teknar séu myndir þar sem stelpur kyssast á djamminu eða bera sig, myndir sem oft eru teknar með vitund og samþykki viðkomandi en ekki alltaf. Margir halda að snapchat-myndir eyðist um leið og búið er að skoða þær en í rauninni er ekkert mál að vista þær og dreifa síðan áfram og þær fara með ljóshraða um netið. Þá eru ótaldar nektarmyndir sem algengt er að fólk sendi ástvini í góðri trú sem síðan enda í dreifingu um allan veraldarvefinn um ókomin ár. Þessum myndum er komið í umferð til þess að ná fram hefndum, auðmýkja og niðurlægja viðkomandi. Oft eru það stelpur sem senda myndirnar og strákar sem dreifa þeim. Afleiðingarnar fyrir þá sem verða fyrir myndbirtingu sem þessari eru m.a. mikil vanlíðan, áfall, skömm, ótti og þöggun - ekki ósvipað afleiðingum naugðunar. Það er vert að leggja áherslu á að dreifing myndanna er trúnaðarbrestur. Þeir sem gera það geta lagt æru og mannorð viðkomandi í rúst til langframa, sjá t.d. frásögn þolanda. Slíkt er alvörumál og varðar við lög. Nýlega féll dómur yfir dreifiaðila sem túlkaður verður sem fordæmisgefandi.
Þeir sem hafa lent í því að myndum af þeim hefur verið dreift, í gríni eða hefndarskyni, hafa lýst líðan sinni vegna þeirrar reynslu sem næstum óbærilegri. Sýnum tillitssemi hvert við annað, hugsum okkur um áður en við særum eða auðmýkjum annað fólk. Ætluð auðmýking og hefndarþorsti gætu snúist í höndunum á okkur og verknaðurinn orðið okkur til ævilangrar skammar.