Í dag voru menntabúðir í KHÍ og þar var margt á seyði. Kynntist m.a. skemmtilegum og einföldum spjaldtölvuleikjum sem gætu lífgað upp á nám og kennslu, t.d. Chatter Pics og Puppet Pals. Fjóla Þorvalds fór á kostum í kynningunni!
Ég held jafnvel að framhaldsskólanemendur hefðu lúmskt gaman af að prófa að tengja þetta við námsefnið. Ég sé Jónas Hallgrímsson fyrir mér segja nokkur orð í Chatter Pics og alltaf er hægt að semja skemmtilegt leikrit upp úr námsefninu í Puppet Pals!