Hér er skemmtileg bókaumfjöllun frá nemanda unnin í prezi. Ætla að nýta mér þetta í haust og geyma þetta hérna á meðan!
Um Cujo / Umsátrið eftir Stephen King
Um Cujo / Umsátrið eftir Stephen King
Hér er skemmtileg bókaumfjöllun frá nemanda unnin í prezi. Ætla að nýta mér þetta í haust og geyma þetta hérna á meðan!
Um Cujo / Umsátrið eftir Stephen King
0 Comments
Ég hef kennt íslensku í 50% starfi í vetur samhliða endurmenntun í upplýsingatækni í skólastarfi. Nemendur mínir halda nú á vit nýrra ævintýra og sumir senda kennaranum sínum sumarkveðju: Takk sömuleiðis fyrir önnina. Mjög ánægður með aðferðinar þínar! Fólk má fá hrós ef það á það skilið. Setur kröfur og ert sanngjörn. Mér fannst bara gaman í íslensku á þessari önn :) Sameiginleg umræða, samkomulag um umræðumerki: #Samspil2015, #menntaspjall #fotbolti #12stig... Aðallega á ensku Allir nemendur skrá sig inn Nemendur velja sér persónu í bók og tísta fyrir hana með umræðumerki Tísta söguþráð í sex tístum! Búa til umræðumerki í twitter og embedda á moodle, nemendur skiptast á að sjá um umræðumerkið og miðla efni til samnemenda Virkar eiginlega eins og sjónræn bókamerki. Hver man ekki eftir að bókmerkja síður og vefi til betri tíma og svo týnist það þegar tölvan er straujuð eða hrynur...?! Þá er ráð að geyma bókamerkin á pinterest! Allt á einum stað, bæði Education og mataruppskriftirnar sem maður á eftir að prófa... Og svo er gaman að kíkja á pinterest-síðu vinanna.
Kahoot spurningaleikur prófaður. Keppni í stofunni, t.d. um hugtök, milli nemenda eða liða eða landshluta, landa! Muna að láta nemendur fá keppnisnúmer eða búa sér til leyninöfn því frammistaðan sést á yfirliti á skjánum. Kennari getur skoðað niðurstöðurnar, fengið þær í excel og séð hvar nemendur standa vel / illa.
Loksins mætt í holdinu á útspilsnámskeið hér í mínum gamla skóla sem mér finnst alltaf notalegt að vera í. Nú er það ástralski blýanturinn sem er í brennidepli. Ójá, ég er svo sannarlega oddur eða allavega flugbeitt! Fræðslutilboð Samspils er virkilega hagnýtt og skemmtilegt. Bara það að kynnast nýjum græjum er gott þótt þær auðvitað breytist og úreldist á methraða eins og eðlilegt er á vorum dögum. Það er gaman að fylgjast með þessu öllu og taka þátt.
|
Fyrri færslur
July 2015
Flokkar |