Loksins mætt í holdinu á útspilsnámskeið hér í mínum gamla skóla sem mér finnst alltaf notalegt að vera í. Nú er það ástralski blýanturinn sem er í brennidepli. Ójá, ég er svo sannarlega oddur eða allavega flugbeitt! Fræðslutilboð Samspils er virkilega hagnýtt og skemmtilegt. Bara það að kynnast nýjum græjum er gott þótt þær auðvitað breytist og úreldist á methraða eins og eðlilegt er á vorum dögum. Það er gaman að fylgjast með þessu öllu og taka þátt.
Í dag voru menntabúðir í KHÍ og þar var margt á seyði. Kynntist m.a. skemmtilegum og einföldum spjaldtölvuleikjum sem gætu lífgað upp á nám og kennslu, t.d. Chatter Pics og Puppet Pals. Fjóla Þorvalds fór á kostum í kynningunni! Ég held jafnvel að framhaldsskólanemendur hefðu lúmskt gaman af að prófa að tengja þetta við námsefnið. Ég sé Jónas Hallgrímsson fyrir mér segja nokkur orð í Chatter Pics og alltaf er hægt að semja skemmtilegt leikrit upp úr námsefninu í Puppet Pals! Það er ekkert mál að setja hér inn vídeó. Fattaði það í morgun! Rakst á þetta skemmtilega fræðslumyndband sem allir ættu að horfa á og deili því hér með. TAGXEDO! Var að prófa þetta, sniðugt til að safna saman stikkorðum (tags) eða skreyta verkefni eða netefni (keyrir á Silverlight). Þetta er bara myndin, á eftir að finna út hvernig ég get haft hana lifandi, veit það einhver? Slóðin er hér, http://www.tagxedo.com/artful/b1c1d90903084b06 Á http://www.quia.com/web eru alls konar leikir sem hægt er að nýta í nám og kennslu. Fékk mér 30 daga prufutíma og líst vel á þetta, splæsi kannski í áskrift síðar. Bjó til einn einfaldan leik sem rifjar upp námsefni í bókmenntasögu og kemur nemendum örugglega í stuð eftir páskafríið. Smelltu á hnappinn til að fara í laufléttan hengimann! Mikil og einhæf fjölmiðlaneysla og netnotkun ungs fólks geta leitt af sér brenglaða heimssýn, óstöðuga sjálfsmynd og misvísandi afstöðu til málefna, t.d. hlutverks kynjanna, sem geta haft alvarlegar afleiðingar. Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki í þessu samhengi, t.d. við að efla gagnrýna hugsun, hjálpa ungu fólki að sjá í gegnum dulinn boðskap auglýsinga og greina staðalmyndir. Það þarf að ræða opinskátt um jafnrétti kynjanna, m.a. vegna þess að í jarðvegi, þar sem birtingarmynd kynjanna í fjölmiðlum og netheimum er vægast sagt einlit og einkennist af hlutgervingu og staðalmyndum, spretta upp fyrirbæri eins og áreitni, einelti og svokallað hefndarklám.
Fyrst varð vart við hefndarklám hér á landi um 2008 og erfitt hefur reynst að ráða við útbreiðslu þess síðan þá. Umgt fólk eru viðkvæmar og stundum auðtrúa sálir og geta orðið fyrir því að myndum af þeim, sem eru teknar í skólanum, á böllum, í partýum eða á heimavelli, er dreift miskunnarlaust á netinu. Algengt er t.d. að teknar séu myndir þar sem stelpur kyssast á djamminu eða bera sig, myndir sem oft eru teknar með vitund og samþykki viðkomandi en ekki alltaf. Margir halda að snapchat-myndir eyðist um leið og búið er að skoða þær en í rauninni er ekkert mál að vista þær og dreifa síðan áfram og þær fara með ljóshraða um netið. Þá eru ótaldar nektarmyndir sem algengt er að fólk sendi ástvini í góðri trú sem síðan enda í dreifingu um allan veraldarvefinn um ókomin ár. Þessum myndum er komið í umferð til þess að ná fram hefndum, auðmýkja og niðurlægja viðkomandi. Oft eru það stelpur sem senda myndirnar og strákar sem dreifa þeim. Afleiðingarnar fyrir þá sem verða fyrir myndbirtingu sem þessari eru m.a. mikil vanlíðan, áfall, skömm, ótti og þöggun - ekki ósvipað afleiðingum naugðunar. Það er vert að leggja áherslu á að dreifing myndanna er trúnaðarbrestur. Þeir sem gera það geta lagt æru og mannorð viðkomandi í rúst til langframa, sjá t.d. frásögn þolanda. Slíkt er alvörumál og varðar við lög. Nýlega féll dómur yfir dreifiaðila sem túlkaður verður sem fordæmisgefandi. Þeir sem hafa lent í því að myndum af þeim hefur verið dreift, í gríni eða hefndarskyni, hafa lýst líðan sinni vegna þeirrar reynslu sem næstum óbærilegri. Sýnum tillitssemi hvert við annað, hugsum okkur um áður en við særum eða auðmýkjum annað fólk. Ætluð auðmýking og hefndarþorsti gætu snúist í höndunum á okkur og verknaðurinn orðið okkur til ævilangrar skammar. "My kids accuse me and my wife of being fascists," he said. "They say that none of their friends have the same rules. That’s because we have seen the dangers of technology first hand. I’ve seen it in myself, I don’t want to see that happen to my kids.” (Steve Jobs) Trúi því samt varla að ekki sé hægt að pósta vídeóum hér án þess að borga? Hvað segið þið?
Kisa í tölvuleik, vídeó |
Fyrri færslur
July 2015
Flokkar |