Ég hef lengi verið viðloðandi upplýsingatækni í skólastarfi. Ævintýrið hófst árið 1999 þegar ákveðið var í Menntaskólanum í Kópavogi að setja markið hátt og allir kennarar og nemendur notuðu fartölvur. Síðan þá hefur boltinn rúllað. Á síðustu árum hefur úrval möguleika aukist gríðarlega og ég hlakka til að fá tíma og leiðsögn um villtustu víðerni upplýsingatækninnar.